Hreyfing eða líkamsrækt, í mínum huga, á að vera skemmtileg og eitthvað til að njóta, finna að við séum full af lífi. En hún getur orðið kvíðvænleg og við hætt að njóta hennar þegar líðan í kjölfar hreyfingar er ekki góð, við verðum verkjuð, upplifum orkuleysi o.fl.
Ég stofnaði IÐU til að búa til öruggt og þægilegt umhverfi fyrir einstaklinga sem vilja ná sínum markmiðum í hreyfingu hvort sem við erum lengra komin eða að byrja aftur að hreyfa okkur eftir meiðsli, langvarandi orkuleysi eða bara langt hlé.
Í Iðu starfa sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar, jógakennari og markþjálfi sem hafa það öll að markmiði að taka vel á móti ykkur í þjálfun og einstaklingsviðtölum.
Ekki hika við að hafa samband, við finnum þá leið sem hentar þér!