Iða
Styrkur - konur NÓVEMBER
Styrkur - konur NÓVEMBER
Couldn't load pickup availability
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 3. nóvember og stendur yfir í fjórar vikur
Ný námskeið hefjast svo á fjögurra vikna fresti.
Frábær hópur fyrir þær sem eru að koma sér af stað aftur í hreyfingu eftir hlé eða meiðsli. Þær sem finna fyrir stoðkerfisverkjum eða orkuleysi.
Tímarnir eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 8.30.
Hóptímar fyrir konur þar sem aðaláherslan er á styrktarþjálfun og hreyfanleika frekar en keyrslu.
Minna er um hopp og hlaup en velkomið að nota þrektæki eftir þörfum.
Færri einstaklingar eru í þessum hóp og meira tækifæri til að aðlaga æfingar og leiðbeina framhjá stoðkerfisverkjum.
Áhersla er lögð á að finna betri útfærslur æfinga fyrir hverja og eina varðandi stoðkerfisverki, hvernig megi æfa út frá dagsformi og þrátt fyrir streitu og orkuleysi.
Val um stakt fjögurra vikna námskeið eða áskrift.
Áskriftin: Þú getur skráð þig í áskrift hér
Áskriftargjaldið er 18.900 kr, innheimt á fjögurra vikna fresti og uppsagnafrestur er eitt greiðslutímabil.
