Skilmálar
1. Um fyrirtækið
Iða rekur vefverslunina studioida.is og býður upp á þjónustu í formi þjálfunar, bæði stafræn þjálfunarprógrömm (fjarþjálfun) og hópþjálfun.
- Nafn söluaðila: Studio Iða, eigandi er Valgerður Tryggvadóttir
- Kennitala: 500625-0580
- VSK númer: á ekki við
- Heimilisfang: Brekkutún 4, 200 Kópavogur, Ísland
- Sími: 8667408
- Netfang: studioida@studioida.is
- Vefur: www.studioida.is
2. Gildissvið
Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti milli Iðu og viðskiptavina sem gerð eru í gegnum vefverslunina studioida.is. Með því að ljúka kaupum staðfestir viðskiptavinur að hann hafi lesið og samþykkt skilmálana.
3. Vörur og þjónusta
Iða býður upp á eftirfarandi vörur og þjónustu:
Stafræn þjálfunarprógrömm (fjarþjálfun)
Afhent stafrænt í kjölfar greiðslu. Aðgangur veittur í gegnum netfang kaupanda.
| Vara | Verð (ISK) |
|---|---|
| Kviður eftir meðgöngu | 29.900 |
| Hlaupaþjálfun | 14.900 |
| Mömmuþjálfun - grunnur | 25.900 |
| Mömmuþjálfun - framhald | 25.900 |
| Konur 60+ | 20.900 |
| Sterkari eftir meðgöngu | 14.900 |
| Hybrid - konur | 25.900 |
| Styrkur - konur | 20.900 |
Lýsingar á hverri vöru má finna á vörusíðum í vefverslun.
Hópþjálfun
Staðbundin hópþjálfun á athafnasvæði Iðu. Nánari upplýsingar og tímaáætlanir á studioida.is.
| Vara | Verð (ISK) |
|---|---|
| Mömmuþjálfun - grunnur | 25.900 |
| Mömmuþjálfun - framhald | 25.900 |
| Konur 60+ | 20.900 |
| Hybrid - konur | 25.900 |
| Styrkur - konur | 20.900 |
4. Verð og greiðslur
- Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem við á.
- Iða tekur við greiðslum með VISA, MasterCard og American Express.
- Greiðslur eru unnar í öruggu greiðsluferli í gegnum færsluhirði (Straumur).
- Kaupandi fær staðfestingu á pöntun senda á uppgefið netfang.
5. Pöntun og afhending
Stafrænar vörur (fjarþjálfun)
- Aðgangur að stafrænni vöru er veittur um leið og greiðsla hefur verið staðfest.
- Vara er afhent í gegnum tölvupóst og/eða aðgangsupplýsingar að vefsvæði.
- Enginn flutningskostnaður fellur til.
Hópþjálfun
- Skráning gildir sem bókun á viðkomandi tímabili eða námskeiði.
- Staðsetning og tímasetning tilkynnt í staðfestingarpósti.
6. Afbókunar- og skilaréttur
Stafrænar vörur
Skv. 25. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga fellur réttur til afpöntunar niður þegar afhending stafrænnar vöru er hafin með samþykki neytanda. Með því að hefja notkun á stafrænu þjálfunarprógrammi samþykkir neytandi að fella niður 14 daga réttinn.
Hópþjálfun
- Afbókun með a.m.k. 14 daga fyrirvara veitir fulla endurgreiðslu.
- Afbókun með skemmri fyrirvara: stofnast inneign á önnur námskeið nema hægt sé að taka inn af biðlista þá fæst full endurgreiðsla.
- Iða áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ófullnægjandi þátttaka fæst; þá fá skráðir fulla endurgreiðslu.
Gallaðar vörur
Ef vara er gölluð eða samsvarar ekki lýsingu ber að tilkynna Iðu tafarlaust á studioida@studioida.is. Réttindi neytenda skv. lögum nr. 16/2016 eru í öllu tilliti virt.
7. Persónuvernd
Iða vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Iðu.
8. Gildandi lög og varnarþing
- Um viðskipti og skilmála þessa gilda íslensk lög.
- Ef ágreiningur kemur upp og ekki næst sátt, er málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
9. Tengiliður og kvartanir
Fyrirspurnir og kvartanir skal senda á:
- Netfang: studioida@studioida.is
- Sími: 8667408
Iða stefnir að því að svara öllum fyrirspurnum innan 3 virkra daga.
10. Breytingar á skilmálum
Iða áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Breytingar gilda frá birtingu á studioida.is. Skilmálar sem eru í gildi þegar pöntun er gerð gilda um þau viðskipti.