Um IÐU
Afhverju IÐA?
Ég stofnaði IÐU til að búa til öruggt og þægilegt umhverfi fyrir einstaklinga sem vilja ná sínum markmiðum í hreyfingu hvort sem við erum lengra komin eða að byrja aftur að hreyfa okkur eftir meiðsli, langvarandi orkuleysi eða bara langt hlé.
Eignast annað heimili þar sem allt IÐAR af lífi og við getum notið okkar, sama á hvaða stað við erum varðandi hreyfingu.
Ég hef ótrúlega gaman að því að vinna með fólki í líflegu umhverfi þar sem hvert og eitt okkar mætir sínum þörfum í góðum félagsskap.
Mikið er lagt upp úr hópþjálfun en við bjóðum einnig upp á sjúkraþjálfun og fjarþjálfun tengda hlaupum og þjálfun eftir meðgöngu.
Ekki hika við að hafa samband! Við finnum vonandi þá leið sem hentar þér.
Þjálfun og úrræði
Hópþjálfun hjá Valgerði
- Fyrir mömmur eftir meðgöngu
- Hybrid - kröftugir þrektímar fyrir konur
- 60+ konur - jafnvægi, styrkur og hreyfanleiki
- Rólegri styrktarþjálfun fyrir konur, hentar einstaklingum með stoðkerfisvanda, konum á meðgöngu
Önnur hópþjálfun og úrræði
- Þrek- styrktar- og hreyfanleikatímar fyrir karla
- 60+ blandaðir hóptímar
- Yoganámskeið
- Markþjálfun
Fjarþjálfun
- Hlaupaþjálfun fyrir byrjendur, eftir hlé, meiðsli eða meðgöngu
- Sterkari eftir meðgöngu - fræðsla, skoðun á kvið og grindarbotni ásamt styrktar og liðkandi æfingum
- Kviður eftir meðgöngu - skoðun og æfingaprógramm fyrir kviðinn eftir meðgöngu
Sjúkraþjálfun hjá Valgerði
Áhugasvið innan sjúkraþjálfunar: stoðkerfisverkir og hreyfing, æfingamiðuð sjúkraþjálfun kvenna á og eftir meðgöngu. Fræðsla og stuðningur við hreyfingu einstaklinga sem eru að finna taktinn í kjölfar streitu, kulnunar eða annarra vandamála sem hafa áhrif á orku okkar og þrek.
Um mig
Ég er mikil fjölskyldukona og útskrifast sem sjúkraþjálfari 2013 og hef auk þess lokið ýmsum námskeiðum tengdum styrktar- og þolþjálfun, næringu, þjálfun kvenna og fleiri námskeið á sviði sjúkraþjálfunar, m.a. um bandvefinn, streitu, höfuðhögg og mismunandi stoðkerfisvandamál.
Ég hef brennandi áhuga á hreyfingu, vellíðan og að leita jafnvægis í daglegu lífi.
Hreyfing eða líkamsrækt, í mínum huga, á að vera skemmtileg og eitthvað til að njóta, finna að við séum full af lífi. En hún getur orðið kvíðvænleg og við hætt að njóta hennar þegar líðan í kjölfar hreyfingar er ekki góð, við verðum verkjuð, upplifum orkuleysi o.fl.
Eftir að hafa upplifað erfiðar meðgöngur, gengið í gegnum mikil og erfið streitutímabil, m.a. í kjölfar meiðsla sem höfðu mikil áhrif á andlega líðan og daglegt líf, var ég hætt að geta stundað vinnu og hreyfingu eins og ég hefði viljað.
En með breytingum á þjálfun, daglegu lífi, aukinni fagþekkingu og svo mörgum litlum fræjum og forvitni er allt bara eins og það á að vera í dag. Ég hef aukna orku, vinnuþrek og stunda hreyfingu verkjalaus.
Vegna þessa tengi ég svo sterkt við tilfinninguna að vilja bara fá að hreyfa sig, vera aktiv og líða vel í eigin líkama og finnst ekkert skemmtilegra en að fá að aðstoða fólk við að finna leið sína í hreyfingu aftur eftir erfið veikindi, meiðsli eða annað. En nálgunin og val á hreyfingu fer algjörlega eftir áhugasviði og fyrri sögu hvers og eins.
Starfsferill
Sjúkraþjálfari hjá Endurheimt, Golfstöðinni og mfl. kvk. Víkings
VIVUS þjálfun
Stofnandi, meðeigandi, framkvæmdastjóri, sjúkraþjálfari og hóptímaþjálfari. Þróun úrræða, hópar, þjálfun og sjúkraþjálfun, ráðgjöf vinnustaða.
Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
Sjúkraþjálfari og styrktarþjálfari
Sjúkraþjálfun Styrkur
Sjúkraþjálfari og hóptímakennari
Handknattleiksdeild Fjölnis, mfl. Kvk
Sjúkraþjálfari
Ýmis einka- og hópþjálfun á eigin vegum og í Heilsuborg
Gáski sjúkraþjálfun
Sjúkraþjálfari
Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili
Sjúkraþjálfari
HK/Víkingur, meistaraflokkur kvenna
Sjúkraþjálfari
Námskeið
- 2015Þjálfum beturStyrktarþjálfun, tíu hluta námskeiðaröð
- 2015Level I Kettlebell certification - Kettlebells Iceland
- 2016Level II Kettlebell certification - Steve MaxwellSótti einnig námskeið um þjálfun utandyra, öndun og hlaup hjá Steve Maxwell
- 2016Fysio FlowBandvefslosun með hreyfingu fyrir mismunandi kúnnahópa
- 2016Truflanir á hreyfingum og hreyfistjórnun hryggjar, mjaðma- og axlargrindar
- 2017Revo2loution RunningÍtarlegt hlaupaþjálfaranámskeið, prógramgerð, lífeðlisfræði, hlaupatækni, meiðslaforvarnir ofl.
- 2017Master class part I - Cervicogenic Headache and Dizziness
- 2017Dynamic tape level 1
- 2018Understanding Pain: From Biology to Care, Part 1
- 2018Kinetic Control Level 1 Movement, Alignment & Coordination
- 2018The Shoulder: Theory & Practice
- 2018Insula Physiotherapy and Mental Health
- 2019The Movement Solution One - Comera Movement ScienceApríl - Nóvember 2019, þrjár vikur dreifðar yfir árið í London
- 2019Styrktarþjálfun afreksíþróttafólks - KineAcademy
- 2019Concussion: Advances in Identification and Management
- 2020Maximizing Motor Learning: Neurology, Geriatrics, Orthopedics
- 2020Hlaupanámskeið hlaup.is fyrir iðkendur og þjálfara
- 2020The Female Athlete Course - Level I
- 2021Birth Healing SummitOnline ráðstefna varðandi kvennheilsu
- 2023The Movement Solution Two - Comera Movement ScienceMjaðmagrind og Brjóstbak
Ýmsir fyrirlestrar og netnámskeið m.a. um þjálfun kvenna á og eftir meðgöngu, þjálfun kvenna m.t.t. hormónakerfis, átraskana, sjálfsmyndar ofl. Fyrirlestrar og námskeið um næringu, næringu íþróttamannsins, markmiðasetningu, svefn, streitu og kulnun, öndun, starfsemi grindarbotns, verkir og einkenni frá grindarbotni, mismunandi meðferðarform stoðkerfisverkja o.m.fl..