Iða
Hlaupaþjálfun
Hlaupaþjálfun
Couldn't load pickup availability
Hlaupaþjálfun fyrir byrjendur, endurkomu eftir meiðsli eða meðgöngu.
Markmiðið er að læra að stilla af álagið í æfingum, byggja þig upp fyrir almenn hlaupaprógrömm og njóta þess að hlaupa.
Hlaupaþjálfunin er 6 vikur og byggir þig upp frá grunni. Þrjár hlaupaæfingar á viku ásamt styrkjandi og liðkandi æfingum sérsniðnar fyrir hlaup og hlaupatengd vandamál.
Þjálfunin fer fram á Truecoach þar sem hægt er að skrifa athugasemdir við æfingarnar og senda skilaboð á þjálfara.
Einnig er hægt að panta tíma í sjúkraþjálfun samhliða og fá leiðbeiningar og stoðæfingar sérhæfðar fyrir þig.
Verð er 14.900 kr fyrir átta vikur, ef þú vilt hafa prógrammið opið lengur geturðu skráð þig í áskrift, 2.990 kr á mánuði.
Umsagnir:
“Eftir erfiða meðgöngu og bílslys þráði ég að komast aftur út að hlaupa. Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir að fara sjálf af stað skráði ég mig í hlaupaþjálfun hjá IÐU. Ég get ekki mælt meira með Valgerði sjúkraþjálfara sem kann allt sitt upp á 10,5”
“Prógrammið er fullkomið fyrir alla sem eru að koma sér af stað í hlaupum eftir meðgöngu, meiðsli eða bara langa pásu.Þegar ég byrjaði snerist allt um að sjá bætingar á tíma og vegalengd hjá mér. En það sem ég áttaði mig á er að þetta snýst um að komast út í náttúruna, ferska loftið og njóta þess að hreyfa sig. Engar áhyggjur ég sá líka massivar breytingar í tíma og vegalengd”
