Iða
Sterkari eftir meðgöngu
Sterkari eftir meðgöngu
Couldn't load pickup availability
Þú skráir þig og færð svo póst frá Truecoach um innskráningu næsta virka dag, prógrammið hefst alltaf á mánudögum.
Fjarþjálfun sem byggist upp á svipaðan hátt og grunnnámskeiðið í mömmuþjálfuninni.
Æfingarnar spanna 6 vikur en þú hefur tækifæri til að taka það yfir lengri tíma.
Allar æfingar og fræðsla eru í Truecoach appinu þar sem þú getur skráð athugasemdir við æfingar og fræðslu og haft samband við þjálfara.
Prógrammið leiðir þig í gegnum fyrstu skrefin í hreyfingu strax eftir barnsburð og yfir í að undirbúa þig fyrir æfingar við meiri ákefð, hopp og hlaup.
Það gerir þig meðvitaðri um líkamann, fræðir þig um kvið og grindarbotn og veitir þér bjargráð og ráðleggingar í hreyfingu, m.a. vegna yfirspennu í grindarbotni, sigeinkenna og stoðkerfisverkja.
Prógrammið er opið í 8 vikur, ef þú vilt hafa það opið lengur geturðu skráð þig í áskrift, 2.900kr/mán. Enginn uppsagnarfrestur.
Umsagnir:
“Fer inn í frekari æfingar full sjálfstrausts vitandi að kviður og grindarbotn eru klár í slaginn - með skynsemi.”
“það gengur bara ótrúlega vel og finn að tengingin er alltaf að koma betur með hverri æfingu. Fýla að geta tekið styrktar- og svo stundum kviðæfingu með líka þegar tíminn leyfir”
“Frábært prógram, akkúrat það sem ég þurfti. Fann að það er fagaðili með fræðsluna sem kann að leiðbeina mömmum í gegnum fyrstu skrefin inn í æfingar. Vönduð myndbönd og góður stuðningur og pepp. Ekkert sem hægt er að setja út á.Mæli með þessu fyrir allar nýbakaðar, takk fyrir mig!”
