Skip to product information
1 of 1

studioida

60+ með SNERPA þjálfun

60+ með SNERPA þjálfun

Regular price 0 ISK
Regular price Sale price 0 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

ATH: sala á námskeiðinu fer fram hjá SNERPA ÞJÁLFUN, ekki kaupa námskeið hér á síðunni

Skráning fer fram hjá SNERPA þjálfun, smelltu á hlekkinn fyrir forskráningu: https://forms.gle/SftY4KLgJvhWakTU7

Styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri

Æfingar hefjast 1. september og eru kl 10 á þriðjudögum og fimmtudögum.

Þjálfarar eru Gísli Martin Sigurðsson og Haukur Leifur Eiríksson, íþróttafræðingar

 

 

UM ÞJÁLFUNINA:

Styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri


Heilbrigður líkami er lykill að auknum lífsgæðum, sjálfstæði og virkni – á öllum aldri.


Hjá Snerpu Þjálfun bjóðum við upp á markvissa styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri sem byggir á gagnreyndri þekkingu og alþjóðlegum ráðleggingum um hreyfingu fyrir eldra fólk. Markmið okkar er að bæta hreyfigetu, efla stoðkerfið og auka styrk sem nýtist í daglegu lífi.


Við leggjum áherslu á þjálfun sem hefur skýran tilgang. Hver æfing er valin með það að markmiði að styðja við heilsu, hreyfigetu og sjálfstæði – ekki að æfa meira, heldur að æfa betur. Æfingarnar hjá okkur henta öllum getustigum og eru aðlagaðar hverjum og einum. 


Á æfingum verður lögð áhersla á:

• Markvissa styrktarþjálfun fyrir vöðva og stoðkerfi.

• Jafnvægi, stöðugleika og fallvarnir.

• Hreyfigetu og færni sem nýtist í daglegum athöfnum.

• Framfarir sem byggja á öruggri og faglegri uppbyggingu.


Við trúum því að þekking sé mikilvægur hluti af árangri. Þess vegna ætlum við að bjóða upp á fræðslufyrirlestra yfir veturinn þar sem fjallað verður um meðal annars styrktarþjálfun, næringu, endurheimt og aðra þætti sem styðja við heilbrigða öldrun og aukin lífsgæði.


Jafnframt leggjum við ríka áherslu á að skapa hlýlegt og uppbyggjandi samfélag. Að loknum æfingum gefst þeim sem vilja tækifæri til að setjast saman yfir kaffibolla, spjalla og njóta góðs félagsskapar. Við teljum að bæði hreyfingin og samfélagið skipti máli.


Hjá Snerpu Þjálfun snýst þjálfun ekki aðeins um að hreyfa sig – heldur um að byggja upp styrk, viðhalda sjálfstæði og skapa forsendur fyrir virkari og heilbrigðari framtíð.


Það verður boðið upp á takmarkað pláss þar sem að við viljum að allir fái sem mesta möguleika á að ná árangri. 


Æfingarnar fara fram í Studio Iða í Grímsbæ og eru á Þriðjudögum & Fimmtudögum milli 10:00-11:00. 


Snerpa Þjálfun – markviss þjálfun sem skiptir máli.

View full details