studioida
Jóga - Vaknað með Vilborgu
Jóga - Vaknað með Vilborgu
Couldn't load pickup availability
Yogaflæði sem hentar öllum 26. maí - 19. júní
Námskeiðið er 4 vikur á þriðjudögum og föstudögum kl 7.00-8.00.
Morguntímar sem byrja á stuttri hugleiðslu og mjúku flæði. Áherslan er á að byggja upp flæði og kraft í takti við öndun. Virkja vöðvana en einnig fara í teygjur og slökun.
Frábært fyrir þá sem vilja nýta bjarta morgna íslenska sumarsins og byrja daginn sinn á tengjast líkamanum, koma hreyfingu á orkuna og kveikja á lífskraftinum.
Uppbygging námskeiðsins
Í hverri viku er unnið með ákveðna áherslu, sem gefur iðkendum innsýn í tengingu jógaiðkunar í daglegt líf.
Vika 1 Taktu eftir
Vika 2 Slepptu tökunum
Vika 3 Lífskraftur
Vika 4 Samhljómur
Aðaláherslan er alltaf líkamlegt flæði sem vekur líkamann mjúklega en kröftuglega
Fjögurra vikna námskeið: 18.900 kr
Stakt skipti: 3.500 kr
