Iða
Kviður eftir meðgöngu
Kviður eftir meðgöngu
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um afhendingu
Þegar þú pantar vöruna hef ég samband við þig í tölvupósti til að bóka tíma.
Við byrjum á skoðun á kvið eftir meðgöngu og einstaklingsmiðaðar ráðleggingar út frá því.
Svo færð þú stuttar kviðæfingar, ásamt fræðslu, í fjarþjálfunarappi sem henta vel með annarri hreyfingu.
Til að endurhæfa kviðinn er mikilvægt að gera æfingar sem stuðla að gróanda. Þú öðlast öryggi við hreyfingu, endurhæfir og styrkir kviðinn og lærir að stýra álagi á grindarbotninn.
Verð er 29.900 fyrir skoðun og fyrstu sex vikurnar í þjálfun.
Ef þú vilt hafa prógrammið opið lengur geturðu skráð þig í áskrift (linkur), 2.990 kr á mánuði. Enginn uppsagnarfrestur.
Umsagnir:
“Skoðunartíminn og fræðslan eru jafnvel lykilatriði fyrir prógrammið og mun líka nýtast mér í framtíðinni við aðrar æfingar og í daglegu lífi”
“Mér fannst mjög mikilvægt að koma í skoðunartímann þar sem að ég hefði ekki treyst mér að meta kviðinn á mér sjálf og mig langaði að fá staðfestingu um hvert ástandið á kviðnum mínum eftir meðgöngu væri”
“Mér fannst geggjað að fá svona einkatíma þar sem ég var skoðuð. Gerir það að verkum að ég er töluvert öruggari þegar ég geri æfingarnar”
"Ég lærði að spenna neðri kvið sem ég hef aldrei lært þrátt fyrir að hafa æft sund í 8 ár (þar eru reglulegir þrektímar) og crossfit í 6 ár. Það mun klárlega nýtast mér.”
Nánar um prógrammið:
Förum yfir algengar spurningar varðandi kviðinn eftir meðgöngu.
Prófum svo mismunandi æfingar, sjáum hvernig þér gengur með að stýra þrýstingi í þeim og hvernig setjum við áherslu á mismunandi vöðva.
Finnum út hvaða álag hentar, hvar áttu að byrja í æfingum og hvað þú getur sett meiri fókus á varðandi æfingar.
Æfingarnar og fræðslan eru í Trucoach appinu ásamt öllum útskýringum um framkvæmd æfinga. Þar getur þú skrifað athugasemdir við æfingarnar og haft samband við þjálfara.
Prógrammið byggist upp af sex erfiðleikastigum og þú færð leiðbeiningar um það hvenær þú ert tilbúin á næsta stig.
Nýjustu rannsóknir benda til að við getum haft áhrif á bilið milli kviðvöðva með kviðæfingum eftir barnsburð. Þar skiptir máli að stýra þrýstingi í grindar- og kviðarholi. Ná upp styrk og færni í kviðnum, líka við snúning. Mikilvægt er þó að taka fram að það er mikil vöntun á frekari rannsóknum á þessu sviði til að fullyrða um það hvort hægt sé að minnka bilið eða ekki. Þjálfunin snýst ekki síður um það að létta álag á grindarbotninn, styrkja miðjuna og læra að stýra virkni og álagi á kvið og aðlæg svæði.
