Skilmálar

1. Um fyrirtækið

Iða rekur vefverslunina studioida.is og býður upp á þjónustu í formi þjálfunar, bæði stafræn þjálfunarprógrömm (fjarþjálfun) og hópþjálfun.

  • Nafn söluaðila: Studio Iða, eigandi er Valgerður Tryggvadóttir
  • Kennitala: 500625-0580
  • VSK númer: á ekki við
  • Heimilisfang: Brekkutún 4, 200 Kópavogur, Ísland
  • Sími: 8667408
  • Netfang: studioida@studioida.is
  • Vefur: www.studioida.is

2. Gildissvið

Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti milli Iðu og viðskiptavina sem gerð eru í gegnum vefverslunina studioida.is. Með því að ljúka kaupum staðfestir viðskiptavinur að hann hafi lesið og samþykkt skilmálana.

3. Vörur og þjónusta

Iða býður upp á eftirfarandi vörur og þjónustu:

Stafræn þjálfunarprógrömm (fjarþjálfun)

Afhent stafrænt í kjölfar greiðslu. Aðgangur veittur í gegnum netfang kaupanda.

Vara Verð (ISK)
Kviður eftir meðgöngu 29.900
Hlaupaþjálfun 14.900
Mömmuþjálfun - grunnur 25.900
Mömmuþjálfun - framhald 25.900
Konur 60+ 20.900
Sterkari eftir meðgöngu 14.900
Hybrid - konur 25.900
Styrkur - konur 20.900

Lýsingar á hverri vöru má finna á vörusíðum í vefverslun.

Hópþjálfun

Staðbundin hópþjálfun á athafnasvæði Iðu. Nánari upplýsingar og tímaáætlanir á studioida.is.

Vara Verð (ISK)
Mömmuþjálfun - grunnur 25.900
Mömmuþjálfun - framhald 25.900
Konur 60+ 20.900
Hybrid - konur 25.900
Styrkur - konur 20.900

4. Verð og greiðslur

  • Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem við á.
  • Iða tekur við greiðslum með VISA, MasterCard og American Express.
  • Greiðslur eru unnar í öruggu greiðsluferli í gegnum færsluhirði (Straumur).
  • Kaupandi fær staðfestingu á pöntun senda á uppgefið netfang.

5. Pöntun og afhending

Stafrænar vörur (fjarþjálfun)

  • Aðgangur að stafrænni vöru er veittur um leið og greiðsla hefur verið staðfest.
  • Vara er afhent í gegnum tölvupóst og/eða aðgangsupplýsingar að vefsvæði.
  • Enginn flutningskostnaður fellur til.

Hópþjálfun

  • Skráning gildir sem bókun á viðkomandi tímabili eða námskeiði.
  • Staðsetning og tímasetning tilkynnt í staðfestingarpósti.

6. Afbókunar- og skilaréttur

Stafrænar vörur

Skv. 25. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga fellur réttur til afpöntunar niður þegar afhending stafrænnar vöru er hafin með samþykki neytanda. Með því að hefja notkun á stafrænu þjálfunarprógrammi samþykkir neytandi að fella niður 14 daga réttinn.

Hópþjálfun

  • Afbókun með a.m.k. 14 daga fyrirvara veitir fulla endurgreiðslu.
  • Afbókun með skemmri fyrirvara: stofnast inneign á önnur námskeið nema hægt sé að taka inn af biðlista þá fæst full endurgreiðsla.
  • Iða áskilur sér rétt til að fella niður námskeið ef ófullnægjandi þátttaka fæst; þá fá skráðir fulla endurgreiðslu.

Gallaðar vörur

Ef vara er gölluð eða samsvarar ekki lýsingu ber að tilkynna Iðu tafarlaust á studioida@studioida.is. Réttindi neytenda skv. lögum nr. 16/2016 eru í öllu tilliti virt.

7. Persónuvernd

Iða vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Iðu.

8. Gildandi lög og varnarþing

  • Um viðskipti og skilmála þessa gilda íslensk lög.
  • Ef ágreiningur kemur upp og ekki næst sátt, er málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

9. Tengiliður og kvartanir

Fyrirspurnir og kvartanir skal senda á:

Iða stefnir að því að svara öllum fyrirspurnum innan 3 virkra daga.

10. Breytingar á skilmálum

Iða áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Breytingar gilda frá birtingu á studioida.is. Skilmálar sem eru í gildi þegar pöntun er gerð gilda um þau viðskipti.